Gustur barnapeysa by Bello Knit

Gustur barnapeysa

Knitting
Worsted (9 wpi) ?
19 stitches and 32 rows = 4 inches
US 8 - 5.0 mm
US 7 - 4.5 mm
328 - 766 yards (300 - 700 m)
6 months - 12 years
Icelandic
This pattern is available for €8.00 EUR
buy it now or visit pattern website

Þessi uppskrift er á íslensku.

Gustur barnapeysa er prjónuð að ofan frá og niður svo ekkert þarf að sauma saman. Þú byrjar sem sagt að prjóna stroff í hálsmáli, síðan berustykkið, svo bolinn og að lokum ermarnar. Peysan er prjónuð með tvöföldu perluprjóni frá toppi berustykkis alla leið niður. Allt stroff í peysunni er 1x1 stroff. Mynstrið heldur lögun sinni í gegnum alla flíkina og má sjá hér að neðan.

STÆRÐIR & MÁL
Gustur barnapeysa er hönnuð með það í huga að hafa u.þ.b. 5-10 cm slaka. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar. Því mætti segja að ef þú mælir ummálið yfir brjóstkassann 65 cm skaltu prjóna stærð 5-6 ára (70 cm).

Stærðir: 6-12 mán (1 árs) 2 ára (3-4 ára) 5-6 ára (7-8 ára) 9-10 ára (11-12 ára)

Ummál: 57 (60) 65 (68) 70 (77) 80 (85) cm

Lengd: 29 (34) 37 (38) 42 (46) 48 (50) cm

Prjónfesta: 19 lykkjur x 32 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr 5

Prjónar: 5 mm og 4 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar.

Tillaga að garni:

#1: 1 þráður 150 (150) 200 (200) 250 (300) 350 g Alpakka Ull frá Sandnes Garn (50g = 100m)
#2: 1 þráður 150 (150) 200 (200) 250 (300) 350 g Léttlopi frá Lopa (50g = 100m)

Erfiðleikastig: 2 af 5.

Hentar vel byrjendum í prjóni sem vilja prufa mynsturprjón!

Peysan á myndinni er prjónuð úr Léttlopa (0051 - hvítur).

Uppskriftin sendist á PDF-formi í tölvupósti.