Rok dömupeysa by Bello Knit

Rok dömupeysa

Knitting
Aran (8 wpi) ?
14 stitches and 36 rows = 4 inches
in Klukkuprjón / brioche
US 7 - 4.5 mm
1203 - 1640 yards (1100 - 1500 m)
XS - 3XL
Icelandic
This pattern is available for €8.50 EUR
buy it now or visit pattern website

Þessi uppskrift er á íslensku.

Rok peysa er víð peysa með stórum rúllukraga. Peysan er prjónuð að ofan frá & niður, fyrst fram og til baka, síðan í hring. Mynstrið í peysunni er prjónað í klukkuprjóni en stroffið í 1x1 stroffprjóni.

Fyrst er hálft bakstykkið prjónað fram & til baka, frá hnakka að handarkrika. Því næst eru teknar upp lykkjur sitt hvoru megin við háls, hálsmálið mótað & hálft efra framstykki prjónað fram & til baka, að handarkrika. Því næst er búkurinn sameinaður og prjónaður í hring. Lykkjur eru teknar upp fyrir ermum, prjónað í hring frá handarkrika að úlnlið. Að lokum eru teknar upp lykkjur fyrir rúllukraga. Ekkert þarf að sauma saman.

STÆRÐIR & MÁL
Peysan Rok er hönnuð með það í huga að hafa um 20 cm slaka. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar, því mætti segja að ef þú mælir ummálið þitt yfir brjóstkassann 95 cm skaltu prjóna stærð M (114 cm). Peysan er hönnuð sem víð peysa með stórum rúllukraga.

Stærðirnar XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL eru hannaðar til að passa fyrir brjóstmál 80-86 (86-93) 94-100 (101-109) 110-115 (116-125) 125-133 cm

Stærðir: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL

Ummál peysu: 103 (109) 114 (126) 131 (137) 148 cm

Lengd peysu: 51 (53) 55 (56) 58 (60) 61 cm

Prjónfesta: 14 lykkjur x 36 umferðir = 10 x 10 cm í klukkuprjóni á 4.5 mm prjóna
(Vinsamlegast athugið að 36 umferðir í klukkuprjóni eru taldar sem 18 umf slétt prjón)
20 lykkjur x 24 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á 4.5 mm prjóna

Prjónar: 4.5 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar og sokkaprjónar.

Tillaga að garni:

#1: 1 þráður 550 (550) 600 (650) 650 (700) 750 g Léttlopi frá Ístex Lopi (50g = 100m).

Erfiðleikastig: 5 af 5.

Peysan á myndinni er prjónuð úr Léttlopa (0056- ljósgrár).

Uppskriftin sendist á PDF-formi í tölvupósti.