Kaninka

Knitting
July 2021
Fingering (14 wpi) ?
18 stitches and 26 rows = 2 inches
US 0 - 2.0 mm
US 1½ - 2.5 mm
US 2½ - 3.0 mm
317 - 416 yards (290 - 380 m)
0-3 (3-6) 6-9 (9-12) 12-24 months
Icelandic
This pattern is available for $7.00 USD
buy it now or visit pattern website

---- ONLY IN ICELNADIC AT THE MOMENT ----

Kaninka er prjónuð fram og til baka. Byrjað er að prjóna stroff við háls- mál og við tekur að prjóna hnakka og hliðar. Þegar hnakki og hliðar hafa verið prjónuð er byrjað að móta fyrir hvirflinum og á sama tíma eru eyrun prjónuð inní, eyru eru prjónuð í hring. Prjónaðar eru upp lykkjur meðfram brún við andlit og stroff prjónað fram og til baka. Bönd eru prjónuð á í lokin.

STÆRÐIR:
Stærðir:
0-3 (3-6) 6-9 (9-12) 12-24 mánaða
Höfuðummál: 35/38 (39/41) 41/43 (44/46) 47/48 cm

EFNI OG ÁHÖLD:
Hægt er að velja úr eftirtöldum garntegundum:
Yaku frá CaMaRose – 50 gr. dokkur = 200 m - 2 (2) 2 (2) 2 dokkur.
Pima bomuld frá CaMaRose – 50 gr. dokkur = 200 m - 2 (2) 2 (2) 2 dokkur. Sommeruld frá CaMaRose – 50 gr. dokkur = 230 m - 2 (2) 2 (2) 2 dokkur.
The uncommon thread, Everyday - 100 gr. hespur = 400 m - 1 (1) 1 (1) 1 hespa. Vivid Wool, Vivid Pure Merino - 100 gr. hespur = 400 m - 1 (1) 1 (1) 1 hespa. Alls: 290 (310) 330 (350) 380 m.

  • Hringprjónar nr 2 og 21⁄2 - 60 eða 80 cm
  • Sokkaprjóna eða langan hringprjón nr 3 fyrir eyru.
  • Sokkaprjónar nr 2
  • Prjónamerki = 3
  • Prjónanælur = 3